Biblían á mannamáli

Biblían á mannamáli

Saga - Menning - Samhengi - Trú Biblían á mannamáli er hlaðvarp, þar sem við lesum saman í Nýja testamentinu og ræðum textann á einföldu, skýru og lifandi máli. Við tengjum Gamla og Nýja testamentið; rýnum í Biblíuna með kærleikann að leiðarljósi; eigum viðtal við alls konar fólk og hressum upp á sálartetrið með góðum gullmola. Markmiðið er að gera þennan forna texta, sem hefur mótað menningu okkar og sögu, aðgengilegan fyrir alla. Tónlist: Enginn elskar eins og þú - höf. Hjalti Gunnlaugsson www.halldorlar.is biblianam@outlook.com

Episodes

September 3, 2026 41 mins

Í þættinum er Galatabréfinu lokið og við færum okkur yfir í Jakobsbréfið. Við skoðum sögulegt samhengi bréfsins: ráðstefnan í Jerúsalem, ágreiningur um lögmál Móse og boðskap Páls.

Það var hálfgert kreppuástand í mörgum hinna kristnu safnaða og Jakob ávarpar stöðuna. Áherslan er á að trúin verði sýnileg í verki, að kristin kærleikssamfélög komi til hjálpar fátækum — allt er þetta sett í raunverulegt samfélagslegt samhengi fru...

Listen
Watch
Mark as Played

Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þessum þætti skoðum við hvernig Páll ber saman frelsið í Kristi og kröfur lögmálsins, og varar við að leita aftur til þvingun utan frá og inn. 

Hann kallar okkur til að lifa í anda: ekki nota frelsið til að svala eigingirninni, heldur láta ávöxt andans birtast í kærleika, gleði, friði, þolgæði og góðvild - að lifa innan frá og út.

Listen
Watch
Mark as Played
August 28, 2026 38 mins

Páll varpar ljósi á frelsið í Kristi og hvernig sönn trú birtist í kærleika og innra lífi.

Við tengjum textann við nútímann, ræðum innra jafnvægi, lækningu sára og hvernig náð Guðs umbreytir lífi okkar innan frá og út.

Í lokin ræðum við aðeins um þá þætti sem við þurfum að "aflæra", að mati þáttastjórnanda. - Rjúfum manngerða mynd hefndar-guðsins. 

Listen
Watch
Mark as Played
August 24, 2026 30 mins

Velkomin í Biblíuna mannamáli. Í þessum þætti er enn farið yfir Galatabréfið, þar sem Páll ræðir andspænis umskurnarsinnum og leggur fram kjarnann: í Kristi er engin sundrung milli þjóðfélagshópa — við erum öll eitt.

Þátturinn notar myndlíf Abrahams, Söru og Hagars til að skýra muninn á lögmáli og náð. Páll sýnir að réttlæting kemur vegna Krists, en ekki vegna ánauðar lögmálsins.

Loks hvetur þátturinn til að treysta Guði og l...

Listen
Watch
Mark as Played

Velkomin í Biblían á mannamáli. Þátturinn heldur áfram að skoða Galatabréfið þar sem Páll rökræðir gegn málflutningi umskurnarsinna og útskýrir muninn á fyrirheiti Guðs til Abrahams og lögmáli Móse.

Rædd eru megintök trúarinnar sem réttlætingu, að trú Abrahams kom á undan lögmálinu, og hvernig sönn, lifandi trú birtist í kærleika og góðum verkum – ávöxtum frelsisins. Lífið er skóli og námsefnið er kærleikur.

Listen
Watch
Mark as Played

Þá er það 50. þátturinn og hann er í lengra lagi. Í þættinum rýnum við í Galatabréfið betur, lögmálið, trúna og góðverkin; skoðum Abraham sem föður trúarinnar og hvernig lögmálið leiddi menn til Krists.

Við útskýrum hvernig Kristur uppfyllir lögmálið, hvernig Heilagur Andi breytir hjörtum og hvernig sönn trú birtist í kærleika og verkum sem sameinar fólk í Kristi.

Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

Listen
Watch
Mark as Played
August 13, 2026 36 mins

Velkomin í Biblían á mannamáli, þar sem við byrjum á þriðja kafla Galatabréfsins: bæn um að rótfestast í kærleika og skoðum rökfærslu Páls gagnvart umskurnarsinnunum. 

Þátturinn dregur fram muninn á réttlætingu fyrir trú og lögmálsverkum; minnist Abrahams sem fyrirmynd trúar og undirstrikar að heilagur andi skapar innri breytingu sem ber sannan ávöxt.

Listen
Watch
Mark as Played
August 10, 2026 36 mins

Í þessum þætti er farið í 2.kafla Galatabréfsins. Páll lýsir för sinni til Jerúsalem með Barnabasi og Títusi; viðurkenningu postulanna á boðun hans og átökum varðandi umskurn og lögmál.

Hann leggur áherslu á að fagnaðarerindið sé frá Kristi, réttlæting sé fyrir trú en ekki af verkum lögmálsins, og að frelsi í Kristi leiði til kærleiks og breyttrar lífsstefnu. 

Átökin voru miklu meira en orðaskak; þetta snerist ekki bara um orð...

Listen
Watch
Mark as Played
August 8, 2026 34 mins

Velkomin í Biblían á mannamáli. Við erum að fara af stað í Galatabréfið.

Í þættinum er gerð grein fyrir uppruna og ástæðu bréfsins, höfuðatriðum Páls: umdeildri túlkun umskurnar og lögmáls Móse innan kirkjunnar, réttlætingu fyrir trú og frelsi í Kristi. Páll ver boðskapinn og leggur áherslu á að náð og trú skapi réttlæti; að verkin séu ávöxturinn en ekki orsökin. 

Lífið í Kristi er innan frá og út, ekki utan frá og inn. 

...

Listen
Watch
Mark as Played

Til að byrja með rifjum við örstutt upp söguþráð Postulasögunnar fram að 16. kafla.. eða svo. Nú eru umskurnarsinnar á ferðalagi um Galatíu og Páll er ekki hress. 

Athygli beinist að ágreiningi um umskurn og lögmál Móse meðal ný-trúaðra og það styttist í það að Páll skrifi fyrsta bréfið sem finnst eftir hann í Nýja testamentinu. Páll skrifar bréfið til að verja fagnaðarerindið sem byggt er á Jesú Kristi einum - fagnaðarerindið...

Listen
Watch
Mark as Played
July 30, 2026 30 mins

Þessi þáttur byggir á Sálmi 121 og hvetur okkur til að líta upp til Guðs þegar vandamál og háir múrar lífsins virðast óyfirstíganlegir. Sjónarhorn sögunnar er Jeríkó, þar sem Jósúa og þjóðin gekk og söng til að sjá kraft Guðs virka - en eitt er það sem margir missa af!

Síðan er það lokahnykkurinn um fleininn í holdi Páls — mótstöðu innan kirkjunnar og ásakanir gegn boðun hans — og minnir á að náð Guðs nægir.

Þátturinn s...

Listen
Watch
Mark as Played

Velkomin í þáttinn „Biblían og mannamáli“ þar sem við ræðum um náðina, muninn á lögmáli og náð, og afleiðingar þess að meðtaka náð Krists í hjörtun. 

Við skoðum nokkur bréf Páls, til að finna þar ákveðið samhengi frásögunnar. Ekki síst skoðum við ágreininginn um umskurnina og „fleininn“ sem Páll barðist við og þá hvernig máttur Krists birtist í veikleika, þjáningum og umbótum.

Kjarni þáttarins: náðin er ekki réttlæ...

Listen
Watch
Mark as Played
July 23, 2026 30 mins

Þessi þáttur fjallar um 15. kafla Postulasögunnar: menn frá Júdeu krefjast umskurðar fyrir heiðna trúaða í Antíokkíu og spratt upp hörð deila milli umskurnarsinna og Páls og Barnabasar. Málið leiddi til fundar í Jerúsalem þar sem Pétur, Jakob og postularnir ræddu og ákváðu að ekki skyldi krafist umskurðar af heiðnum kristnum. 

Atburðirnir varpa ljósi á þau átök sem áttu sér stað um lögmálið og náðina, og mótun frumkirkjunnar.

Listen
Watch
Mark as Played
July 21, 2026 20 mins

Velkomin í Biblían á mannamáli: við höldum áfram í Postulasögunni og skoðum áhrif kirkjunnar árin eftir dauða, upprisu og uppstigningu Krists.

Þátturinn tengir sálm 107 og þemu um lífið sem skóla kærleika; þjáningu sem tímabundna; og innri endurnýjun sem leiðir til eilífrar vonar.

Sögulínan fylgir Páli og Barnabasi í för þeirra og heimkomu til Antíokkíu. Þar segir einnig frá tilskipun Kládíusar, um brottrekstur Gyðinga frá Róm.&nbs...

Listen
Watch
Mark as Played

Þessi þáttur fjallar um ferðalag Páls og Barnabasar til Lýstru, þar sem þeir lækna lamaðan mann; eru ranglega dýrkaðir sem Seifur og Hermes; og Páll er síðan grýttur til dauða. 

Sagan kynnir einnig Tímóteus til sögunnar; lýsir því hvernig fyrstu kirkjurnar rísa, og tengir atburðina við bréf Páls síðar meir. 

Þátturinn skoðar líka þemu um nær-dauða reynslu, trú, þol, kærleika og það hvernig líf í Kristi breytir samfélagi o...

Listen
Watch
Mark as Played
July 13, 2026 25 mins

Þessi þáttur fjallar um það hvernig allir hrasa í lífinu og um mikilvægi þess að bregðast rétt við: viðurkenna mistök, rísa á fætur og treysta á náð Guðs til umbreytinga.

Út frá dæmisögunni um týnda soninn og frá broti úr lífi Davíðs konungs, getum við lært um eðli Guðs og hversu mikilvægt það er að vakna til lífsins innra fyrir - það leiðir til lífs í kærleika.

Listen
Watch
Mark as Played

Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þessum þætti höldum við áfram ferð okkar um Postulasöguna. Nú fylgjumst við með fyrstu trúboðsferðinni, til Antíokkíu í Pisidíu, Kýpur og Perge.

Við skoðum boðskapinn, mótspyrnu og kraftaverk — meðal annars snertingu á lífi fólks, eins og rómverska landsstjórans, Sergíusar Páls. 

Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

www.halldorlar.is

biblianam@outlook.com

Listen
Watch
Mark as Played

Þessi þáttur segir frá vexti kirkjunnar í Antíokkíu (um 45–47 e.Kr.), hvernig Barnabas sækir Sál (Pál) til að þjálfa hann og byggja upp söfnuðinn. Í Antíokkíu er Jesúfólkið fyrst kallað kristið. Við fylgjumst með því hvernig hópur umskurnarmanna leggur hart að heiðin-kristnum, að halda lögmál Móse - og deilum sem af því hlutust, en líka jákvæðri niðurstöðu.

Við lesum einnig um gríðarlega mikilvæga bænastund, þar sem Heilagi A...

Listen
Watch
Mark as Played

Í þættinum er farið yfir kafla 11–12 í Postulasögunni: vöxt safnaðarins í Antíokkíu, Barnabas uppörvara og hvernig heiðingjar taka kristni við kraft anda Guðs. Agabus spámaður varar við hungursneyð og söfnun fer fram til aðstoðar Jesúfólkinu í Júdeu.

Þá er fjallað um ofsóknir Heródesar Agrippa, aftöku Jakobs, fangelsun Péturs og undraverða lausn hans — auk ígrundunar um egóið og kærleikann; boðskap Jesú til okkar allra....

Listen
Watch
Mark as Played
June 15, 2026 24 mins

Velkomin í þáttinn okkar, Biblían á mannamáli. Í Molanum er fjallað um sekt og sektarkennd, fyrirgefningu Guðs í Kristi og líf án fordæmingar. 

Við förum einnig yfir upphaf kristniboðs á grísk-rómversku svæðunum og sérstakt mikilvægi borgarinnar Antíokkíu, sem vöggu kristninnar utan Ísraels. Jesúfólkið umbylti öllu með nýrri sýn á samfélag fólks. 

Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

www.halldorlar.is

biblianam@outlook.com

Listen
Watch
Mark as Played

Popular Podcasts

    If you've ever wanted to know about champagne, satanism, the Stonewall Uprising, chaos theory, LSD, El Nino, true crime and Rosa Parks, then look no further. Josh and Chuck have you covered.

    Betrayal Weekly

    Betrayal Weekly is back for a new season. Every Thursday, Betrayal Weekly shares first-hand accounts of broken trust, shocking deceptions, and the trail of destruction they leave behind. Hosted by Andrea Gunning, this weekly ongoing series digs into real-life stories of betrayal and the aftermath. From stories of double lives to dark discoveries, these are cautionary tales and accounts of resilience against all odds. From the producers of the critically acclaimed Betrayal series, Betrayal Weekly drops new episodes every Thursday. If you would like to share your story, you can reach out to the Betrayal Team by emailing them at betrayalpod@gmail.com and follow us on Instagram at @betrayalpod and @glasspodcasts. Please join our Substack for additional exclusive content, curated book recommendations, and community discussions. Sign up FREE by clicking this link Beyond Betrayal Substack. Join our community dedicated to truth, resilience, and healing. Your voice matters! Be a part of our Betrayal journey on Substack.

    Dateline NBC

    Current and classic episodes, featuring compelling true-crime mysteries, powerful documentaries and in-depth investigations. Follow now to get the latest episodes of Dateline NBC completely free, or subscribe to Dateline Premium for ad-free listening and exclusive bonus content: DatelinePremium.com

    The Joe Rogan Experience

    The official podcast of comedian Joe Rogan.

    Love Trapped

    Former Bachelor Clayton Echard’s casual one-night fling turned into a paternity nightmare. When the news broke about the scandal, no one believed Clayton at first. He was a reality TV star, and an unpopular one at that. Clayton found himself trying to prove the truth, while trapped in a web of lies, manipulation, and threats. He would soon discover he was not the only one. At its core, this is a story about who you believe and why. It’s an epic battle that would take a group of strangers, citizen sleuths from across the world, to crack the case and finally hold someone accountable. New episodes of Love Trapped are released every Thursday, starting February 26th, 2026. If you would like to reach out to the Love Trapped team, email us at lovetrappedpod@gmail.com and follow along on Instagram @glasspodcasts.

Advertise With Us
Music, radio and podcasts, all free. Listen online or download the iHeart App.

Connect

© 2026 iHeartMedia, Inc.

  • Help
  • Privacy Policy
  • Terms of Use
  • AdChoicesAd Choices